Hleð myndbandi
Texti
Icelandic (Íslenska)
Vill einhver ykkar koma með mér?
Ég vil fylgja þér herra,
en leyf mér fyrst að kveðja fjölskyldu mína.
Enginn sem leggur hönd á plóginn og horfir aftur, er ekki hæfur í Guðs ríki.
Hver sem vill fylgja mér, afneiti sjálfum sér,
taki kross sinn daglega og fylgi mér.
Því að hver sem vill bjarga lífi sínu, mun týna því,
og hver sem týnir lífi sínu mín vegna, hann mun bjarga því.
Hvað stoðar það, að eignast allan heiminn en týna og fyrirgjöra sjálfum sér?
En þeim sem blygðast sín fyrir mig og mín orð,
mun mannssonurinn blygðast sín fyrir er hann kemur í dýrð sinni
og dýrð Föðurins og heilagra engla.
En ég segi yður með sanni:
nokkrir þeirra sem hér standa, munu eigi dauða bíða fyrr en þeir sjá Guðs ríki...